Erfðarannsókn vísindamanna hjá Íslenskri erfðagreiningu og samstarfsaðila bendir til þess að hormónið aldósterón gegni mun stærra hlutverki í að valda lyfjaþolnum háþrýstingi en áður var talið. Sjötti hver Íslendingur með háþrýsting er með lyfjaþolinn háþrýsting sem þýðir að ekki hefur náðst að meðhöndla blóðþrýstinginn þeirra nægilega með þremur mismunandi háþrýstingslyfjum sem tekin eru samhliða. Þessir einstaklingar eru líklegri til að fá alvarlega hjarta- og nýrnasjúkdóma en þeir sem eru með háþrýstinginn sem auðveldara er að meðhöndla.

Vinicius Tragante, vísindamaður hjá Íslenskri erfðagreiningu, er fyrsti höfundur vísindagreinar um rannsóknina sem birtist í vísindatímaritinu Hypertension. Tímaritið birti einnig sérstaka ritstjórnargrein um þýðingu niðurstaðnanna.

Rannsakendur báru saman erfðaupplýsingar rúmlega 23 þúsund einstaklinga með lyfjaþolinn háþrýsting og rúmlega 24 þúsund einstaklinga með háþrýsting sem auðveldara var að meðhöndla. Þátttakendur rannsóknarinnar komu frá Íslandi, Bretlandi og Bandaríkjunum. Vísindamennirnir fundu 24 erfðabreytileika sem tengjast auknum líkum á lyfjaþolnum háþrýstingi. Tveir þriðju þessara erfðabreytileika tengjast einnig ofgnótt aldósteróns og lægra magni kalíums í blóði. Að auki gátu rannsakendur sýnt fram á að lyfjaþolinn háþrýstingur er afleiðing ofgnóttar aldósteróns.

„Niðurstöðurnar varpa ljósi á mögulega ástæðu þess að sumt fólk svarar illa hefðbundinni lyfjameðferð við háþrýstingi. Þær benda til þess að fleiri gætu haft gagn af lyfjum sem vinna gegn áhrifum aldósteróns, en aðeins 8,8% íslenskra sjúklinga með lyfjaþolinn háþrýsting fá slík lyf,“ segir Vinicius Tragante, vísindamaður hjá Íslenskri erfðagreiningu og fyrsti höfundur greinarinnar.“

Deila!