Háskóli Íslands (HÍ) og Íslensk erfðagreining (ÍE) hafa undirritað fimm ára samstarfssamning sem miðar að því að styrkja enn frekar tengsl og samstarf á sviði erfðafræðirannsókna og þjálfun ungs vísindafólks. Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ, Unnur Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri ÍE, og Daníel F. Guðbjartsson, yfirmaður vísindarannsókna hjá ÍE, undirrituðu samninginn nýverið í húsakynnum Háskóla Íslands.

Frá undirritun samningsins.


HÍ og ÍE hafa um árabil átt í nánu vísindasamstarfi sem meðal annars hefur falist í sameiginlegri birtingu vísindagreina í mörgum af fremstu vísindatímaritum heims. Þá hafa verið mikil tengsl á milli beggja stofnana þar sem vísindafólk HÍ hefur starfað hjá ÍE og öfugt, auk þess sem sérfræðingar og vísindafólk frá ÍE hafa komið að leiðsögn framhaldsnema við HÍ.
Markmið samstarfssamningsins er að efla og styrkja enn frekar samstarf HÍ og ÍE um og auka nýtingu gagna til vísindarannsókna í erfðafræði og þjálfun háskólanema á því sviði. Áhersla er lögð á grunnrannsóknir sem byggja á umfangsmiklum gagnasöfnum ÍE á sviði mannerfðafræði, auk nýtingar öflugrar rannsóknaraðstöðu sem hvor aðili um sig býr yfir.
Samkvæmt samningnum getur ÍE boðið nemendum námskeið og málstofur sem metnar verða til eininga í ákveðnum námsleiðum við HÍ. Þá gefst nemendum skólans kostur á að vinna rannsóknarverkefni innan ÍE undir leiðsögn vísindamanna fyrirtækisins auk þess sem HÍ mun bjóða vísindamönnum ÍE stöðu rannsóknarkennara við tilteknar deildir háskólans, þar sem gerður verður sérsamningur um hvert slíkt gestakennarastarf.
Sérstök samstarfsnefnd HÍ og ÍE heldur utan um málefni samningsins og eru í henni tveir fulltrúar frá hvorum aðila.
„Við hjá Íslenskri erfðagreiningu höfum í gegnum árin lagt áherslu á að bjóða framúrskarandi nemendum við Háskóla Íslands tækifæri til að vinna með og læra af okkar fremsta vísindafólki og taka beinan þátt í öflugu rannsóknarstarfi”, segir Unnur Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri ÍE.
„Náið samstarf ÍE og HÍ á sviði rannsókna skiptir miklu máli. Það er mikilvægt fyrir háskólanema að kynnast hagnýtu rannsóknarstarfi frá fyrstu hendi og með þessum samningi gefst okkur hjá Íslenskri erfðagreiningu tækifæri til að nýta á ábyrgan hátt þau verðmætu gögn sem þjóðin hefur treyst okkur fyrir í samstarfi við vísindafólk og háskólanema við Háskóla Íslands“, segir Daníel F. Guðbjartsson, yfirmaður rannsókna hjá Íslenskri erfðagreiningu.
„Íslensk erfðagreining hefur rekið afar öflugar vísindastarfsemi undanfarna áratugi og samstarf við Háskóla Íslands hefur verið náið á þeim tíma. Með þessum nýja samningi, sem ég fagna mjög, er verið að formgera enn öflugra samstarf á næstu misserum en með þróun í tölvugreindartækni og gríðargögnum koma sífellt fram nýir samstarfsmöguleikar. Ég hlakka því sannarlega til framhaldsins,“ segir Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.

Deila!