Þróun Amgen og Novartis á nýju lyfi gegn Alzheimer hefur verið hætt.

Jón Snædal öldrunarlæknir á Landsspítalanum fór fyrir lyfjarannsókninni í samstarfi við Þjónustumiðstöð rannsóknarverkefna. Ákvörðun um að hætta við verkefnið var tekin í gær eftir að sérstök vísindanefnd sem yfirfór fyrstu niðurstöður hafði metið það svo að aukaverkanir sem fylgja lyfinu væru of miklar og óvíst um gagnsemi þess.

Miklar vonir voru bundnar við þessa lyfjatilraun þar sem Alzheimer sjúkdómurinn er flókinn og ein af stærstu áskorunum sem heilbrigðisvísindin standa frammi fyrir. Allar tilraunir til að þróa lyf gegn sjúkdómnum hafa verið árangurslausar.

130 Íslendingar voru byrjaðir að taka lyfin en alls höfðu 500 undirgengist undirbúningsrannsóknir. 8 manns hjá Þjónustumiðstöð rannsóknaverkefna störfuðu við verkefnið, tveir læknar, tveir sálfræðingar og fjórir hjúkrunarfræðingar.

David Reese yfirmaður rannsókna og þróunar hjá Amgen segir að þetta séu mikil vonbrigði, bæði fyrir vísindin og milljónir einstaklinga sem sjúkdómurinn hafi áhrif á. Hann segist þó enn trúa því að efnahvatinn sem lyfið átti að hemja sé mikilvægur í þessu flókna samspili sem leiði til sjúkdómsins. Fyrirtækið sé reiðubúið að deila vísindaniðurstöðum sínum með þeim sem leiti orsaka sjúkdómsins og leggja þannig sitt lóð á vogarskálarnar.

Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir lyfið hemja efnahvatann eins og stefnt hafi verið að en það nægi ekki til að hægja á þróun sjúkdómsins auk þess sem því fylgi óæskilegar aukaverkanir.

Þjónustumiðstöð rannsóknaverkefna mun hafa samband við alla þátttakendur í rannsókninni og ræða við þá um framhaldið.

Deila!