Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala, tók í dag fyrstu skóflustunguna að húsnæði sem mun hýsa nýjan jáeindaskanna.  Íslensk erfðagreining færði íslensku þjóðinni skannann að gjöf sem og allan tilheyrandi tækjakost og sérhæft húsnæði undir hann. Verðmæti gjafarinnar er rúmar 840 milljónir króna. Flókinn og umfangsmikill búnaður fylgir skannanum,  svo sem öreindahraðall sem framleiðir geislavirk efni sem leita í sjúka vefi líkamans. Jáeindaskanni er oftast notaður í krabbameinsmeðferðum en hann er einnig hægt að nýta í tauga-, hjarta- og gigtlækningum.

Húsnæðið verður byggt við Landspítala á Hringbraut, aðlægt skyldri starfsemi til að ná sem mestri skilvirkni og þægindum fyrir sjúklinga. Gert er ráð fyrir að húsnæðið verði tilbúið í september en þá verður skannanum og búnaði komið fyrir og hann prufukeyrður. Áætlað er að skanninn verði kominn í notkun um næstu áramót.

Bylting í greiningu sjúkdóma

Jáeindaskanni hefur ekki verið til á Íslandi en nýr skanni mun valda byltingu í greiningu og meðferð sjúkdóma. Árlega hafa um 200 sjúklingar farið í jáeindaskanna til Danmerkur en áætlað er að um 2.000 manns muni fara í skannann hér á landi á ári hverju. Jáeindaskanni gefur nákvæmar upplýsingar um staðsetningu og dreifingu krabbameina. Með slíkar upplýsingar er hægt að gera geislameðferð markvissari og fækka óþarfa skurðaðgerðum. Skanninn mun gefa betri upplýsingar um útbreiðslu sjúkdóma hjá um þriðjungi sjúklinga og mun þar af leiðandi breyta meðferð þeirra töluvert. Með markvissari meðferð minnka aukaverkanir og batahorfur aukast. Að auki verður hægt að greina hvernig sjúkdómar bregðast við meðferð og því hægt að grípa fyrr inn í ef gera þarf breytingar á meðferðinni. Að lokum mun jáeindaskanninn nýtast vel við rannsóknar- og vísindastarf á Íslandi en hann er í dag orðinn sjálfsagður hluti af rannsóknaraðferðum við marga sjúkdóma.

www.decode.is/jaeindaskanni

 

 

Deila!