Bob Bradway ásamt stjórnendum Íslenskrar erfðagreiningar

Bob Bradway, forstjóri Amgen, heimsótti starfsstöðvar Íslenskrar erfðagreiningar miðvikudaginn 11. mars. Í heimsókninni kynnti hann sér starfsemina í Vatnsmýri, ræddi við stjórnendur og vísindafólk og fundaði með öllum starfsmönnum ásamt Dr. Howard Chang, Chief Scientific Officer og SVP Global Research hjá Amgen.

Bob þakkaði starfsfólki Íslenskrar erfðagreiningar fyrir góðar móttökur og áhugaverð samtöl. Hann sagði að rannsóknir vísindafólks Íslenskrar erfðagreiningar muni áfram vera afar mikilvægar í lyfjaþróun og lyfjarannsóknum Amgen sem miða að því að takast á við alvarlega sjúkdóma og bæta lífsgæði sjúklinga.

Hann sagði að lyfjarannsóknir og lyfjaþróun hafa tekið miklum breytingum með tilkomu og hraðri þróun gervigreindar. Amgen verði áfram í fararbroddi á því sviði.

Bob sagðist bera miklar væntingar til áframhaldandi og aukins samstarfs vísindamanna Íslenskrar erfðagreiningar og annara vísindamanna Amgen, það væri uppspretta nýsköpunar og vísindalegra uppgötvana.

Hann bætti við að Íslensk erfðagreining muni áfram gegna lykilhlutverki í alþjóðlegu rannsóknarstarfi Amgen.

Á fundinum kynntu tveir vísindamenn frá Íslenskri erfðagreiningu, Guðmundur Logi Nordahl og Doruk Beyter, niðurstöður rannsókna úr verkefnum sem unnin hafa verið í víðtæku samstarfi vísindamanna Íslenskrar erfðagreiningar og annara starfstöðva Amgen.

Að kynningum loknum svöruðu Bob og Howard spurningum starfsmanna og spunnust í kjölfarið líflegar umræður um vísindarannsóknir.

Deila!