Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar, ásamt alþjóðlegum hópi vísindamanna, hafa fundið sjaldgæfan erfðabreytileika í MSTN-geninu sem tengist auknum vöðvamassa og meiri styrk. Niðurstöður rannsóknarinnar birtast í Nature Communications, virtu vísindatímariti.
Rannsóknin er umfangsmikil safngreining á erfðafræðilegum þáttum sem tengjast vöðvamassa. Alls fundust 63 svæði í erfðamenginu sem tengjast vöðvamassa, þar á meðal sjaldgæfur breytileiki í MSTN-geninu sem hafði sérstaklega sterk tengsl við vöðvamassa í fótleggjum og tengdist auknum vöðvastyrk.
MSTN-genið stýrir myndun mýóstatíns, próteins sem virkar eins og bremsa á vöxt beinagrindarvöðva. Niðurstöðurnar benda til þess að erfðabreytileikinn dragi úr virkni mýóstatíns og stuðli þannig að auknum vöðvavexti. Rannsóknir á blóðsýnum sýndu að hlutfall virks mýóstatíns var lægra hjá þeim sem báru breytileikann, þótt heildarmagn þess í blóði væri meira.
Vöðvamassi og styrkur skipta miklu fyrir hreyfigetu og almenna heilsu en hvort tveggja getur minnkað með hækkandi aldri, vegna sjúkdóma og í tengslum við þyngdartap. Mýóstatín hefur því lengi verið rannsakað sem mögulegt lyfjamark vegna þróunar lyfja við vöðvarýrnun og öðrum sjúkdómum sem valda tapi á vöðvamassa.
„Við höfum fundið sjaldgæfan erfðabreytileika sem virðist draga úr virkni mýóstatíns próteinsins og tengist bæði meiri vöðvamassa og auknum styrk. Niðurstöðurnar hjálpa okkur að skilja betur hvaða áhrif langvarandi hömlun þessa próteins kann að hafa hjá fólki. Þær geta þannig nýst bæði við þróun lyfjameðferða og við mat á öryggi þeirra,“ segja Aðalheiður Elín Lárusdóttir og Unnur Diljá Teitsdóttir, fyrstu höfundar greinarinnar.
