Daniel Gudbjartsson

Íslensk erfðagreining, dótturfélag alþjóðlega líftæknifyrirtækisins Amgen, hefur ráðið Daníel F. Guðbjartsson, Ph.D., í starf forstjóra fyrirtækisins.
Daníel mun leiða starfsemi Íslenskrar erfðagreiningar á Íslandi og áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins sem einnar öflugustu rannsóknarmiðstöðvar heims á sviði erfðafræði mannsins. Með ráðningunni stefnir Amgen að því að efla enn frekar vísindastarf Íslenskrar erfðagreiningar og efla starf fyrirtækisins til uppgötvunar nýrra lyfjamarka og dýpri skilnings á meinafræði sjúkdóma.
Daníel hefur starfað hjá Íslenskri erfðagreiningu frá árinu 1998 og gegnt þar lykilhlutverki í vísindastarfi og vexti fyrirtækisins. Hann var áður yfirmaður tölfræðigreiningar og tók við stöðu yfirvísindamanns (Chief Scientist) hjá félaginu á síðasta ári. Daníel hefur átt ríkan þátt í að leggja þann aðferðafræðilega grunn sem umfangsmiklar stofnerfðafræðirannsóknir Íslenskrar erfðagreiningar byggja á. Þá hefur hann verið veitt fjölda ungra vísindamanna leiðsögn hér á landi og tekið virkan þátt í öflugu alþjóðlegu vísindasamstarfi.
„Ég hef fengið tækifæri til að vaxa og þróast með Íslenskri erfðagreiningu í tæpa þrjá áratugi og hlakka til að takast á við þetta nýja hlutverk. Við lifum tíma mikilla framfara í tilraunatækni og greiningaraðferðum, ekki síst á sviði gervigreindar,“ segir Daníel F. Guðbjartsson. „Við munum áfram leggja áherslu á hágæða vísindastarf og trausta gagnagreiningu til að skapa nýja þekkingu sem dýpkar skilning okkar á sjúkdómum.“
„Daníel býr yfir djúpri sérþekkingu á þeim vísindalega og aðferðafræðilega grunni sem starfsemi og rannsóknir Íslenskrar erfðagreiningar byggja á,“ segir Howard Chang, M.D., Ph.D., aðstoðarforstjóri alþjóðlegra rannsókna og vísindastjóri Amgen. „Íslensk erfðagreining gegnir áfram lykilhlutverki í alþjóðlegu rannsóknastarfi okkar og stefnu. Við munum byggja áfram á traustum grunni fyrirtækisins sem gegnir lykilhlutverki í erfðarannsóknum og stuðlar að raunverulegum framförum og framþróun í þágu sjúklinga.“ 

 

Deila!