Opinn fræðslufundur í tilefni aldarafmælis Bandalags kvenna í Reykjavík

Konur og heilbrigði

Ertindi fluttu:
Erla Dóris Halldórsdóttir, hjúkrunar- og sagnfræðingur, Fæðingarhjálp og heilbrigði kvenna.
Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor, Ögurstundir heilsufars
Þórunn Rafnar, erfðafræðingur, Erfðir brjóstakrabbameins
Kári Stefánsson, læknir og erfðafræðingur, Aldur móður og auðna barna

OPNIR FRÆÐSLUFUNDIR

Á opnum fræðslufundum Íslenskrar erfðagreiningar er fjallað um rannsóknir á starfsemi líkama mannsins og eðli og erfðum ýmissa sjúkdóma. Fundirnir eru að jafnaði haldnir í samráði við samtök áhugafólks og sjúklinga og læknar og erfðafræðingar skýra frá helstu niðurstöðum og hugsanlegri hagnýtingu þeirra til lækninga og fyrirbyggjandi aðgerða.

STAÐSETNING

Íslensk erfðagreining, Sturlugata 8, 101 Reykjavik