Alls má rekja um 2 prósent af erfðamengi hvers Íslendings til Neanderdalsmanna en það skemmtilega er að við berum ekki endilega sömu bútanna. Þannig var hægt að púsla saman um helming af erfðamengi Neanderdalsmanns úr þeim forsögulegu erfðabútum sem finnast í núlifandi Íslendingum.

Þetta sýnir ný rannsókn vísindamanna hjá Íslenskri erfðagreiningu og samstarfsmanna þeirra hjá Háskólanum í Árósum sem birtist í vísindaritinu Nature í dag.
Rannsóknin leiðir í ljós að um helmingur erfðamengis Neanderdalsmanna finnst í erfðamengi núlifandi Evrópubúa.
Þetta er langstærsta rannsóknin þar sem raðgreining erfðamengja er notuð til að varpa ljósi á kynblöndun milli Neanderdalsmanna og Homo sapiens fyrir 50 þúsund árum. Alls voru skoðuð erfðamengi 28 þúsund Íslendinga eða úr nærri 10 prósentum þjóðarinnar. Notuð var ný greiningaraðferð, sem var ekki takmörkuð við leit að litningabútum úr þeim þremur fornu mannverum sem hafa verið raðgreindir beint úr tugþúsund ára gömlum líkamsleifum.
Þá kom einnig skýrt fram við rannsóknina að hægt er að rekja búta úr erfðamengi Íslendinga til Denisovana, annarrar  fornrar manntegundar sem að öllum líkindum blandaðist Neanderdalsmönnum áður en þeir blönduðust Homo sapiens.

Agnar Helgason einn höfunda rannsóknarinnar segir að mikilvægi hennar felist ekki síst í umfanginu, sem gefi miklu betri mynd af þessari forsögulegri blöndun og áhrifum hennar á líffræðilegan fjölbreytileika núlifandi fólks. Rannsóknin leiðir í ljós að erfðaefnið frá þessum forsögulegu frændtegundum hefur sáralítil áhrif á sjúkdóma eða svipgerð núlifandi fólks. Einungis fundust fimm fornar erfðabreytur sem hafa áhrif á svipgerð, en þær hafa áhrif á hæð okkar, virkni blöðruhálskirtlls, stærð og styrk blóðrauða og hraða blóðstorknunar

Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og annar höfundur á rannsókninni segir þessa vitneskju mikilvægt innlegg í leitinni að uppruna manneskjunnar, þetta sé ættarsaga einnar greinar mannkynsins sem segi okkur að við erum ekki bara homo sapiens heldur einnig afkomendur annarra forsögulegra tegunda.

Deila!