Fræðsla vegna notkunar eftirlitsmyndavéla hjá Íslenskri erfðagreiningu ehf. (ÍE) og á lóð ÍE.
Ábyrgðaraðili vöktunarinnar er: Íslensk erfðagreining ehf. (ÍE), Sturlugötu 8, 102 Reykjavík, sími 570-1900 með netfangið personuvernd@decode.is
Persónuverndarfulltrúi: Hjá ÍE starfar persónuverndarfulltrúi. Netfang persónuverndarfulltrúa er personuvernd@decode.is
Tilgangur vöktunarinnar: Í öryggis- og eignavörsluskyni.
Heimild til vinnslu: Vöktun fer fram til að gæta lögmætra hagsmuna ÍE af öryggis- og eignavörsluástæðum, sbr. 6. tölul. 9. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.
Tegundir persónuupplýsinga: Myndefni sem verður til við vöktunina á hinu vaktaða svæði þar sem sjá má einstaklinga sem farið hafa um svæðið og athafnir þeirra.
Viðtakendur: Aðgengi að myndefni er stýrt af öryggisdeild ÍE og vaktað af öryggisvörðum frá samningsbundnu öryggisfyrirtæki. Efni með upplýsingum er varða öryggi- og eignavörslu getur verið birt stjórnendum og/eða starfsmönnum ÍE. Myndefni er varpar ljósi á slys eða refsiverðan verknað getur jafnframt verið afhent lögreglu. Einnig getur efni verið afhent tryggingafélagi sé það nauðsynlegt vegna tryggingamáls. Sjá að öðru leyti 5. og 10. gr. reglna nr. 50/2023 um rafræna vöktun.
Varðveislutími myndefnis: Myndefni er varðveitt í 30 daga og er síðan eytt sjálfkrafa. Þó geta upptökur verið varðveittar lengur sé það nauðsynlegt til að krafa verði afmörkuð, sett fram eða varin vegna dómsmáls eða annarra slíkra laganauðsynja. Sjá að öðru leyti 2. tölul. 2. mgr. 5. gr. og 11. gr. reglna nr. 50/2023 um rafræna vöktun.
Réttindi einstaklinga: Einstaklingar geta átt rétt að fá afrit af myndefni að því gefnu að það skerði ekki réttindi og frelsi annarra. Að öðru leyti fer um réttindi einstaklinga samkvæmt III. kafla laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd: Þeir sem sæta rafrænni vöktun eiga rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd ef þeir telja að vinnsla persónuupplýsinga þeirra gangi gegn persónuverndarlögum.